
Við óskum ykkur gleðilegs nýs árs og vonum að þið hafið haft það gott yfir hátíðarnar með fjölskyldu og vinum.
Myndina tók hin hæfileikaríkt Caroline Giese!
Við óskum ykkur gleðilegs nýs árs og vonum að þið hafið haft það gott yfir hátíðarnar með fjölskyldu og vinum.
Myndina tók hin hæfileikaríkt Caroline Giese!
Viltu auka kjark og þor á baki? Við bjóðum upp á einkatíma til þess að auka vellíðan og jafnvægi á hestbaki. Kennsluhestur er til staðar sem er vel þjálfuður og rólegur. Hægt er að fá einkatíma á honum í reiðhöllinni á Kjarri eða úti á fallegum reiðvegum. Einnig bjóðum við upp á sætisæfingar í hringtaum til þess að bæta ásetu knapans og öryggi hans. Okkar markmið í kennslu er að hjálpa hverjum knapa að bæta sína reiðmennnsku á sínum forsendum. Kennarar eru Eggert Helgason og Larissa Silja Werner, reiðkennarar frá Háskólanum á Hólum. Frekari upplýsingar og tímapantanir fást í gegnum einkaskilaboð eða í síma 8601314 (Eggert)
The Icelandic horse magazine Eidfaxi reported that 17 horses received the mark 9.5 for pace in this year’s breeding shows around the world. We always have loved horses with good pace – a good five gaiter is our breeding goal and we aim to breed horses with a natural ability to perform well in pace disciplines. So we couldn’t be prouder to notice that five horses in this group of exceptional pace horses nare sired by our very own Stáli frá Kjarri! He scored 9.5 for pace himself when he was shown and we are very happy that he obviously is giving that ability on to his offsprings.
We are congratulating the breeders and owners with these wonderful horses:
Tildra frá Kjarri
Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum
Stolt frá Laugavöllum
Ernir frá Efri-Hrepp
Líf frá Lerkiholti
Enn er mögulegt að koma með hryssur undir heiðursverðlauna stóðhestinn okkar Stála en hann er enn í fullu fjöri. Hann hlaut 9.09 fyrir hæfileika og tekur á móti hryssum heima í Kjarri. Einnig er hægt að koma með hryssur undir hina fyrstu verðlauna stóðhestanna okkar, Máf, Stúf, Fálka og Páfa – ekki hika við að hafa samband fyrir frekari upplýsingar!
Tilda frá Kjarri, undan Stála og Stjörnu frá Kjarri, fór í kynbótadóm í síðustu viku og hlaut 8,64 fyrir hæfileika, þar af 9,5 fyrir skeið og samstarfsvilja. Hún er alsystir Spóa og Máfs frá Kjarri. Við óskum eigenda hennar, Ragnheiði Samúelsdóttur, innilega til hamingju með þessa fallegu og hæfileikaríku hryssu!
Við gætum ekki verið ánægðari fyrir hönd vina okkar hjá Gangmyllinnu með árangur Álfakletts frá Syðri-Gegnishólum. Olil sýndi hann með stakri prýði og hlaut hann 8,94 í aðaleinkunn, þar af 9,5 fyrir skeið og samstarfsvilja. Þessi einkunn gerir hann ekki einungis hæst dæmda afkvæmi Stála frá Kjarri heldur einnig næst hæst dæmda stóðhest í heimi. Til hamingju Olil Amble og Gangmyllan
Það var kominn tími á nýja og snjallvæna vefsíðu. Snillingarnir hjá Allra Átta smíðuðu síðuna sem nú lítur dagsins ljós. Hér má sjá ýmislegt um hrossaræktina í Kjarri og starfsemina sem þar fer fram. Góða skemmtun.